Lamentations 5

1Minnstu þess, Drottinn, hvað yfir oss hefir gengið, lít þú á og sjá háðung vora. 2Arfleifð vor er komin í hendur annarra, hús vor í hendur útlendinga. 3Vér erum orðnir munaðarleysingjar, föðurlausir, mæður vorar orðnar sem ekkjur. 4Vatnið sem vér drekkum, verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun. 5Ofsækjendur vorir sitja á hálsi vorum, þótt vér séum þreyttir, fáum vér enga hvíld. 6Til Egyptalands réttum vér út höndina, til Assýríu, til þess að seðjast af mat. 7Feður vorir syndguðu, þeir eru eigi framar til, og vér berum misgjörð þeirra. 8Þrælar drottna yfir oss, enginn hrífur oss úr höndum þeirra. 9Með lífsháska sækjum vér matbjörg vora í eyðimörkinni, þar sem sverðið vofir yfir oss. 10Hörund vort er orðið svart eins og ofn af hungurbruna. 11Konur hafa þeir svívirt í Síon, meyjar í Júda-borgum. 12Höfðingja hengdu þeir, öldungnum sýndu þeir enga virðingu. 13Æskumennirnir urðu að þræla við kvörnina, og sveinarnir duttu undir viðarbyrðunum. 14Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum. 15Fögnuður hjarta vors er þrotinn, gleðidans vor snúinn í sorg. 16Kórónan er fallin af höfði voru, vei oss, því að vér höfum syndgað. 17Af því er hjarta vort sjúkt orðið, vegna þess eru augu vor döpur, 18vegna Síonarfjalls, sem er í eyði og refir nú hlaupa um. 19Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, þitt hásæti stendur frá kyni til kyns. 20Hví vilt þú gleyma oss eilíflega, yfirgefa oss um langan aldur? 21Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum!
Copyright information for Icelandic